Hjólastilling er framkvæmd til að tryggja rétta hjólastöðu, bæta aksturseiginleika og draga úr óeðlilegu sliti á dekkjum. Ef bifreið dregur til hliðar, stýri stendur skakkt eða dekk slitna ójafnt getur verið þörf á hjólastillingu.
Við mælum sérstaklega með hjólastillingu eftir skipti á stýrisendum, spyrnum, hjólabúnaði eða öðrum íhlutum fjöðrunar og stýriskerfis.
Athugið að hjólastilling leiðréttir ekki titring í stýri eða bifreið. Slík einkenni stafa oft af ójafnvægi í dekkjum eða öðrum göllum sem þarf að greina sérstaklega.
Bókaðu tíma í dag og tryggðu réttan hjólabúnað, betri aksturseiginleika og aukna endingu dekkjanna.