Krabbameinsfélagið - Námskeið
Þegar á reynir: Seigla og bjargráð - 2 skipti
martes, 17 de noviembre
13:00-15:00
Skógarhlíð 8, Reykjavík, Ísland
Invitados
1
Reserve
Descripción
Þátttakendur læra leiðir til að styrkja og efla seiglu og bjargráð með aðferðum jákvæðrar sálfræði og HAM (hugrænnar atferlismeðferðar).
Þegar við erum að takast á við þær áskoranir sem fylgja krabbameinsgreiningu, krabbameinsmeðferð eða eftirfylgni, er gott að geta gripið til hjálplegra bjargráða og verkfæra sem efla seiglu og sjálfstraust.
Námskeiðið er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum.
Námskeiðið er í tveimur hlutum, þriðjudagana 17. og 24. nóvember kl. 13:00 – 15:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, 1.hæð.
Leiðbeinandi er Katrín Sverrisdóttir, sálfræðingur Krabbameinsfélagsins.
Vinsamlega athugið: Ef fullbókað er á námskeiðið getur þú sent okkur tölvupóst á netfangið [email protected] eða hringt í síma 800 4040 og skráð þig á biðlista eða fengið nánari upplýsingar.