Elija qué reservar
Ráðgjöf vegna málþroska 0-6 ára barna
50 min
•
25.000 kr.
Ráðgjöfin er ætluð foreldrum sem hafa áhyggjur af málþroska barns síns eða vilja fá leiðbeiningar um hvernig þeir geta stutt við málþroska þess.
Fyrir ráðgjafartímann eru foreldrar beðnir um að fylla út bakgrunnsupplýsingar um barnið, málþroska þess og þær áskoranir sem það stendur frammi fyrir. Þannig er hægt að undirbúa ráðgjöfina með þarfir barnsins og fjölskyldunnar í huga.
Í ráðgjöfinni fá foreldrar einstaklingsmiðaðar leiðbeiningar og hagnýtar hugmyndir um hvernig þeir geta eflt málþroska barnsins í daglegu lífi.
Ráðgjafartíminn er ætlaður foreldrum og ekki er gert ráð fyrir að barnið mæti með.
Ráðgjöfin felur ekki í sér formlegt málþroskamat eða greiningu á barninu, heldur leiðbeiningar til foreldra um hvernig þeir geta stutt við málþroska þess.
Ráðgjöf vegna málþroska 6-15 ára barna
50 min
•
25.000 kr.
Ráðgjöfin er ætluð foreldrum sem hafa áhyggjur af málþroska barns síns eða vilja fá leiðbeiningar um hvernig þeir geta stutt við mállega færni þess. Erfiðleikar geta meðal annars komið fram í málskilningi, tjáningu, námi og samskiptum.
Foreldrar fylla út bakgrunnsupplýsingar fyrir ráðgjafartímann og fá í kjölfarið einstaklingsmiðaðar leiðbeiningar og hagnýtar hugmyndir um hvernig þeir geta stutt við málþroska og samskiptafærni barnsins í daglegu lífi og í tengslum við skólastarf.
Ráðgjafartíminn er ætlaður foreldrum. Ekki er gert ráð fyrir að börn yngri en 12 ára mæti með í tímann. Hins vegar er mælt með því að börn frá 12 ára aldri mæti ásamt foreldrum sínum.
Ráðgjöfin felur ekki í sér formlegt málþroskamat eða greiningu.
Ráðgjöf vegna málþroska 16 ára og eldri
50 min
•
25.000 kr.
Ráðgjöfin er ætluð unglingum og ungmennum frá 16 ára aldri sem glíma við málþroskavanda eða vilja fá leiðbeiningar um hvernig hægt er að takast á við áskoranir tengdar málskilningi, tjáningu, námi og samskiptum.
Fyrir ráðgjafartímann eru fylltar út bakgrunnsupplýsingar og í kjölfarið veittar einstaklingsmiðaðar leiðbeiningar og hagnýtar hugmyndir sem miða að því að auðvelda daglegt líf, nám og samskipti.
Áhersla er lögð á að unglingurinn eða ungmennið sé virkur þátttakandi í ráðgjöfinni, fái tækifæri til að átta sig betur á eigin styrkleikum og áskorunum og læri hagnýtar aðferðir til að takast á við þær.
Ráðgjafartíminn er fyrst og fremst ætlaður unglingnum eða ungmenninu sjálfu. Þó getur verið gagnlegt að taka foreldri eða annan nákominn einstakling með sér í tímann.
Ráðgjöfin felur ekki í sér formlegt málþroskamat eða greiningu.