Français
NAT er aðferð sem gerð er á svæði hálsliða og neðst á höfuðkúpu. Sex mismunandi ilmolíur eru notaðar ásamt glerpinna en tilgangur meðferðarinnar er að örva og virkja þær taugar og taugamót sem liggja um höfuðið. Með hjálp efnasambanda olíanna og taugaörvuninni hefur meðferðin góð áhrif á allt taugakerfið. Blóðflæði um háls og höfuð eykst og súrefnisupptaka einnig. Góð meðferð við spennu í höfði og herðum.
Mild en öflug nuddmeðferð með hreinum ilmkjarnaoíum, á bak og iljar, með léttar strokur, tog og heitum bakstri. Dásamleg meðferð sem getur unnið á bólgum í líkamanum og styrkir m.a ónæmiskerfið, ásamt því að vera mjög slakandi og róandi.
Dásamleg slakandi meðferð með hágæða ilmkjarnaolíum. Léttar strokur upp að hnjám, ilmkjarnaolíur og þrýstingur á punkta á iljum. Mjög öflug meðferð sem vinnur djúpt inná innri kerfi líkamans, losar um streitu og stress og eflir innri kyrrð.
Dásamlegt dekur. Blönduð meðferð í 90 mín.