Moonfire.life – Heilun og ráðgjöf
11:11 – ÓSKAGRIPUR – Skapandi kvöldstund með ásetningi, hugleiðslu, galdri og tónum
Wednesday, November 11
20:00-22:00
Þverholt 5, 270 Mosfellsbær, Iceland (Bakhús)
11.110 kr. per person
Guests
1
Book
Description
11/11 – hefur í nútíma andlegri hefð orðið táknrænn dagur fyrir samstillingu, innsæi og nýtt upphaf. 11:11 er oft notað sem áminning um að staldra við, beina athyglinni að því sem við viljum skapa meira af í lífinu og spyrja: Hvað er það sem ég vil kalla inn í líf mitt núna?
Í þessari 11:11 kvöldstund ætlum við að gefa okkur tíma til að finna svarið áður en við reynum að setja það í orð. Við byrjum á stuttri leiddri hugleiðslu og mjúkum tónum. Þar fær líkaminn að slaka á, hugurinn að hægja á sér og athyglin að færast aðeins dýpra inn á við. Í því rými gefum við okkur tíma til að hlusta eftir því sem vill koma fram. Kannski veistu nákvæmlega hvað þú vilt opna fyrir. Kannski kemur eitthvað óvænt upp þegar kyrrðin fær aðeins meira pláss. Þaðan mótum við eina ósk eða skýran ásetning og síðan tekur sköpunin við. Við búum til okkar eigin Óskagrip með hvítum mosa, lavender, smá skrauti og samanbrotinni ósk sem fær að hvíla inni í gripnum. Hver gripur verður einstakur og geymir það sem skiptir þig máli á þessum tímapunkti. Það getur verið kærleikur, hugrekki, ró, ný byrjun, sköpun, frelsi eða eitthvað allt annað sem kemur til þín í stundinni.
Þegar gripurinn er tilbúinn lokum við kvöldinu með lítilli 11:11 athöfn, þar sem við tengjum gripinn við ásetninginn sem hann geymir. Kvöldið er fyrir þig sem ert forvitin um sköpun, innsæi, orku, galdra og kraft ásetnings – hvort sem þú hefur unnið með slíkt áður eða ert einfaldlega forvitin um að prófa.
Engin reynsla af föndri, hugleiðslu eða göldrum er nauðsynleg.
Innifalið: 2 klst. upplifun, leidd hugleiðsla, tónar, allur efniviður í Óskagripinn, 11:11 athöfn og te eða kakó.