2/1/22
Bæting
Tímatal → Noona HQ
Tímatal → Noona HQ
Stærsta breytingin hjá okkur núna í febrúar var klárlega að við skiptum um nafn, úr „Tímatal” í „Noona HQ”. Þetta var virkilega stórt skref fyrir okkur og við getum ekki beðið eftir því að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér. Við þökkum öllum tryggu viðskiptavinum okkar kærlega fyrir skilninginn og stuðninginn í gegnum þetta sérstaka tímabil.
Breytingar og lagfæringar
• Noona HQ
• Ekki verður lengur hægt að fela tilkynningar sem að koma inn í gegnum Noona. Þetta er gert þar sem að starfsmenn voru stundum óvart að fela tilkynningar samstarfsfólks sem að sá þá ekki tímabókunina.
• Núna er hægt að senda mun lengri SMS skilaboð á viðskiptavini í gegnum tímabókunina.
• Lyklaborðið í Noona HQ appinu í símanum fer ekki lengur yfir mikilvæga valmöguleika.
• Fyrirtæki með margar staðsetningar munu núna birtast sem ein eining á Noona markaðstorginu.
• Hægt að búa til yfirflokka yfir þjónustur.
• Ný og betri leið til að velja sér tímabil í Noona appinu.